Gas

Gas krefst réttrar meðferðar

Gas sem notað er til eldunar er kallað F-gas og er að jafnaði blanda af própani og bútani.
Eðlismassi þess er um 1,6 – 2 sinnum meiri en andrúmslofts. Þar sem það er litlaust og lyktarlaust er ætíð blandað í það sterku lyktarefni. F- gas er eld og sprengifimt.

  • Veldu ávallt viðurkenndan búnað.
  • Logavörður er nauðsynlegur öryggisbúnaður.
  • Fáðu fagmann til að koma tækjunum fyrir.
  • Láttu yfirfara tækin reglulega. Meðal annars á að skipta um slöngur á um fimm ára fresti.
  • Ef gasflaska er höfð inni í skáp komdu þá gasskynjara fyrir sem næst gólfi, til dæmis á sökkli innréttingar.
  • Gasflöskur verða að standa uppréttar á stöðugri undirstöðu.
  • Þrýstiminnkara verður að koma fyrir á eða við gasflösku.
  • Ef bökunarofn er undir gashellum eiga gaslagnir að vera fasttengdar (sérhæfður frágangur og efnisval), annars má nota allt að eins metra langa gasslöngu.

Ekki má geyma suðugas inni í íbúðarhúsum. Varðandi eldunargas er fólk hvatt til þess að kynna sér öryggisatriði er varða meðhöndlun og geymslu á slíkum búnaði. Fáið fagmann til að sjá um uppsetningu á gastækjum. Þegar um slíkan búnað er að ræða þyrfti gasflaskan að vera staðsett í loftræstum skáp utandyra. Ef gasflaskan er höfð í innréttingunni þarf að koma gasskynjara fyrir á sökkli hennar.

Hér getur þú nálgast nánari leiðbeiningar um F-gas.