Arnar og Kamínur

Arna og kamínur þarf að setja upp á viðurkenndan hátt

Það er orðið nokkuð algengt að fólk vilji fá arin eða kamínu í íbúðina. Til að koma í veg fyrir eldhættu, sprengihættu, eitrunarhættu og heilsuspillandi áhrif verður að gæta þess að búnaðinum sé komið fyrir á viðurkenndan hátt.
Hér eru nokkrar ábendingar er varða uppsetningu og notkun á slíkum búnaði:

  • Veldu eingöngu viðurkennd tæki og búnað.
  • Fáðu fagmann til að sjá um uppsetningu og frágang.
  • Fylgdu nákvæmlega leiðbeiningum um notkun.
  • Veldu reykrör sem uppfylla kröfur um þykkt og gæði, t.d. 316 - L stál.
  • Það verður að tryggja aðstreymi fersks lofts til að stjórna megi brunanum og koma í veg fyrir að súrefnisskortur setji fólk í hættu. Til öryggis ætti þú að koma viðurkenndum kolsýruskynjara (CO) fyrir á völdum stað.
  • Varast ber snertingu við heita hluta tækjanna, mælt er með því að kamínur og rör séu einangruð eins og kostur er.
  • Öryggisgrindur á að setja upp þar sem börn gætu brennt sig.
  • Notaðu neistagrindur.
  • Mikilvægt er að fjarlægðir að brennanlegum efnum og byggingarhlutum séu eins og reglur kveða á um, á þetta einnig við um reykrörin.
  • Auk leiðbeininga frá söluaðilum viðurkenndra tækja eru nánari upplýsingar í byggingarreglugerð, leiðbeiningum Brunamálastofnunar ríkisins og hjá Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins.


Þitt eftirlit

  • Ekki hafa hluti nær en 1 metra, þ.m.t. föt.
  • Hreinsaðu, eða láttu hreinsa tækin reglulega, þ.m.t. reykrör.
  • Slökktu glæður áður en farið er að sofa eða húsnæðið yfirgefið.
  • Ekki brenna hluti sem gefa frá sér heilsuspillandi reyk, s.s. plast- og gúmmíefni.