5. Byggingin og starfsemin

Meta þarf ástand bygginga með tilliti til eldvarna.  Skoða þarf hvort byggingar séu í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti og leyfi hafi verið fengið fyrir breytingum, bæði á byggingum og starfsemi.  Hægt er að fá afrit af samþykktum aðaluppdráttum hjá viðkomandi byggingarfulltrúa.  Ef fyrirhugaðar eru breytingar á byggingu eða starfsemi getur verið nauðsynlegt að sækja um nýtt byggingarleyfi.