4. Fræðsla og þjálfun

Upplýsingar verða að berast skilmerkilega til allra starfsmanna um áhættuþætti, sem og viðbragðs- og rýmingaráætlun.  Þetta á einnig við um þá sem koma til dæmis til vinnu vegna viðhalds í skamman tíma.  Með nákvæmum upplýsingum um áhættuþætti takmörkum við hættuna á því að eldur geti kviknað.

Á hverjum vinnustað ætti að vera til viðbragðs- og rýmingaráætlun.  Tilgangur hennar er að tryggja betur öryggi þeirra sem í byggingunni dvelja ef eldur kemur upp.  Áætlunin byggir mikið á eigin áhættugreiningu og niðurstöðurnar ættu að vera aðgengilegar lykilstjórnendum sem og trúnaðarmönnum fyrirtækisins.  Á þeim stöðum sem fáir vinna gæti áætlun verið A4 blað með einföldum leiðbeiningum.  Í stærri og flóknari byggingum skal rýmingaráætlun vera vel skipulögð og æfð, þannig að allir þekki sitt hlutverk ef eldur kemur upp.