Í vinnunni

Vinnan

Hvað gerir þú í neyðartilfelli
Þú átt að bregðast strax við. Um leið og þú færð vitneskju um að eldur sé laus hvort sem það kemur frá samstarfsfélögum eða frá brunaviðvörunarkerfinu, sé það til staðar, bregstu strax við án þess að hika og ferð að næsta útgangi.

Á leiðinni út skaltu drífa aðra samstarfsfélaga þína með þér. Hafðu í huga að ekki má nota lyftur. 

Út-ljós og skilti
vísa þér á leiðir út úr húsinu og mundu að þær eru alltaf fleiri en ein ef sú sem þú hefur valið er ófær.

Farðu út og vertu úti. Þegar þú kemur út máttu alls ekki fara inn í bygginguna aftur fyrr en hættuástandi hefur verið aflétt.

Láttu vita.
Láttu öryggisverði og björgunarfólk vita að þú er kominn út og eins ef þú telur þig vita um einhvern sem er ekki kominn út.

Ef þú uppgötvar eld:  Ef þú uppgötvar eld láttu samstarfsmenn þína strax vita t.d. með köllum eða með því að ræsa brunaviðvörunarkerfið með handboða sé það til staðar. Ef eldurinn er lítill og það er slökkvibúnaður nálægt reyndu þá að slökkva hann ef þú treystir þér til.

Vinnustaðir eru nánast jafn misjafnir og þeir eru margir og því aðeins hægt telja upp það sem gildir almennt. Eigandi mannvirkis ber ábyrgða á að brunavarnir þess uppfylli ákvæði laga og reglugerða og hæfi starfseminni í því. Eigandi/forráðamaður/atvinnurekandi ber ábyrgð á eigin brunavörnum, að þær séu virkar og haft sé reglubundið eftirlit með þeim. Um vinnustaði sem eru stærri en 50 m2 og fleiri en 5 starfsmenn gildir að eigandi/forráðamaður ber að fela ákveðnum starfsmanni yfirumsjón með brunavörnum hússins og þjálfun starfsfólks varðandi innra eftirlit, fyrstu viðbrögð við eldi og slökkvistarf. Æskilegast er að hann sé eigandi eða stjórnandi og skal a.m.k. einu sinni ári gera úttekt á eldvörnum og brunaöryggi í húsnæðinu.

Þar sem brunaáhættur eru stórar, margt starfsfólk, mikill fólksfjöldi ásamt því ef eldhætta er mikill vegna starfseminnar ber að huga sérstaklega að möguleikum starfsfólks að ráða niðurlögum elds strax í upphafi með fræðslu og þjálfun.

Hafðu í huga að þó atvinnurekandi beri ábyrgð á brunavörnum og að þeim sé viðhaldið þá bera starfmenn sjálfir ábyrgð á því að fara eftir þeim reglum sem settar í fyrirtækinu um brunavarnir. Einnig verða þeir sjálfir að kynna sér hvernig brunavarnir eru á staðnum og þá sérstaklega flóttaleiðir ef atvinnurekandinn sinnir ekki skyldum sínum um að uppfræða starfsmenn. Til að eldvarnirnar sem búið er að setja upp í húsnæðinu þjóni tilgangi sínum þegar þær reynir þarf að halda þeim við og umgangast þær rétt. T.d. þarf að hlaða slökkvitæki árlega og eldvarnarhurðir virka ekki eins og þær eiga að gera nema þær séu lokaðar og mega því ekki haldast opnar með neinu nema segulgripi tengdu brunaviðvörunarkerfi sem sleppir hurðinni við brunaboð. Hólfandi eldvarnarveggir verða að vera heilir og þéttir til að halda eldi og reyk í skefjum þegar á reynir. Því má ekki gera gat á slíka veggi t.d. fyrir tölvulagnir án þess að ganga frá gatinu á viðeigandi hátt.