Í verslunarmiðstöð

Verslunarmiðstöð

Þú átt að bregðast strax við.
Ef brunaviðvörunarkerfið fer í gang á að bregðast strax við án þess að hika og fara að næsta útgangi. Hafðu í huga að sú leið þar sem þú komst inn í verslunina þarf ekki að vera fljótasta leiðin út, það gætu verið aðrir útgangar nær þér.

Út-ljós og skilti vísa þér á leiðir út úr húsinu og mundu að þær eru alltaf fleiri en ein ef sú sem þú hefur valið er ófær. Ef þú átt erfitt með að átta þig hikaðu ekki við að spyrja starfsfólk eða aðra í kringum þig til vegar. Ef barnapössun er á staðnum verður farið með börnin strax út og beðið þar eftir að foreldrar komi og sæki þau.

Farðu út og vertu úti. Þegar þú kemur út máttu alls ekki fara inn í húsið aftur fyrr en hættuástandi hefur verið aflétt. Ef þú varst með barn í pössun finnur þú það í öruggri gæslu fyrir utan húsið.

Láttu vita. Ef þú telur þig vita um einhvern sem er ekki kominn út láttu öryggisverði og björgunarfólk vita.
Það sem er sérstakt við hættuástand í verslunarmiðstöðvum og stórum verslunum er að:

  • þar getur verið saman kominn mikill fjöldi fólks.
  • Yfirleitt er um að ræða stórar byggingar þar sem gönguleiðir að og frá aðalinngöngum geta verið mjög langar.
  • Stærð og fyrirkomulag í húsinu gerir það að verkum að oft sjást ummerki frá eldi á einum stað ekki strax frá öðrum hlutum hússins.
  • Uppstilling og fyrirkomulag á vöru í verslunum getur tafið rýmingu.


Af þessum sökum er mikilvægt að rýming byrji strax og viðvörun um hættuástand hefur verið gefin. Gleymdu öllu sem þú hefur heyrt um falsboð og farðu strax út úr húsinu. Vegna langra gönguleiða að og frá aðalinngöngum þar sem þú komst inn er líklegt að sú leið sé ekki fljótasta leiðin út. Á leiðinni út skalt þú hlusta eftir skilaboðum frá hátalarakerfi hússins. Í verslunarmiðstöðvum og stórum verslunum er oft boðið upp á barnapössun. Starfsfólkið sem passar börnin er þjálfað í að koma börnunum strax út á fyrirfram ákveðin stað fyrir utan húsið ef hættuástand skapast. Ef þú er með barn í pössun á staðnum mundu að ekki eyða tíma þínum eða annarra í að sækja það þangað heldur farðu beint út. Síðan leitaðu að staðnum þar sem börnin eru geymd í öryggi fyrir utan húsið.