Hvað gerir þú í neyðartilfelli
Þú átt að bregðast strax við. Ef brunaviðvörunarkerfið fer í gang bregstu strax við án þess að hika og ferð að næsta útgangi. Hafðu í huga að leiðin gegnum aðalinnganginn þarf ekki að vera sú sem er næst.
Í skólum á að vera til rýmingaráætlun sem hefur verið æfð reglulega á brunaæfingum.
- Ef þú ert nemandi farðu þá nákvæmlega eftir því sem þér hefur verið kennt á brunaæfingunum.
- Ef eitthvað óvænt kemur upp sem þú veist ekki hvernig á að bregðast við þá ferðu eftir því sem kennarinn segir þér. Reyndu að vera róleg (ur) og róa þá sem eru í kringum þig því þá gengur allt betur.
- Ef svo ólíklega vill til að engar brunaæfingar hafa verið haldnar þá ferðu eftir því sem kennarinn segir því það er hann sem á að sjá um að koma sínum nemendum út úr byggingunni á öruggann stað.
- Ef gangurinn fyrir framan skólastofuna er fullur af reyk eða ónothæfur af öðrum ástæðum þarf að nota hina flóttaleiðina frá stofunni sem oftast er björgunarop og þá opnanlegur gluggi. Ef auðvelt er að komast út og niður á jörð farið þið strax út en annars látið þið vita af ykkur og bíðið eftir björgunarmönnum.
Farðu út og vertu úti. Þegar þú kemur út máttu alls ekki fara inn í skólann aftur fyrr en hættuástandi hefur verið aflétt. Haltu þig í hóp með bekknum þínum og farðu skilyrðislaust eftir því sem kennarinn segir og ekki fara fyrr en hann gefur leyfi til þess. Það er mikilvægt fyrir skólastjórnendur og björgunarfólk að vita hverjir eru komnir út og hvort einhverja vantar.
Ef þú uppgötvar eld: Ef þú uppgötvar eld í skólanum láttu þá strax kennara eða húsvörð vita. Ef þú finnur engan fljótlega skaltu kveikja á brunaviðvörunarkerfinu með því að ýta á handboða sem er takki í litlum rauðum kassa á vegg með gleri fyrir.
Það sem er sérstakt við hættuástand í skólum er að Það er mikill fjöldi barna saman kominn í skólum og því getur verið mikil óvissa um hvernig þau bregðast við þegar brunaviðvörunarkerfið fer í gang. Þar sem um börn er að ræða getur skapast öngþveiti þegar foreldrar frétta af því sem er að gerast og vilja vita hvar sín börn eru niður komin. Því þarf að gæta barnanna þar til foreldrar hafa gert ráðstafanir til að ná í börnin eða láta vita hvort þau megi fara heim.
Mörg börn hafa mikið ímyndunarafl og þau upplifa hættuástand á misjafnan hátt. Ef brunahólfanir eru samkvæmt nútíma viðmiðunum er hætta á eldútbreiðslu í skólanum takmörkuð a.m.k. í fyrstu. Þó er allur varinn góður. Þess vegna er nauðsynlegt að kennarar stjórni rýmingu á húsnæðinu og að nemendur fari eftir því sem hann segir. Til að rýming gangi vel þarf að liggja fyrir rýmingaráætlun fyrir skólann sem allir þekkja. Hana þarf að festa í sessi með því að halda brunaæfingar reglulega til að þjálfa upp rétt viðbrögð. Ef engar brunaæfingar hafa verið haldnar þurfa nemendur að fylgja fyrirmælum kennarans. Halda þarf góðu skipulagi á öllum sem eru komnir út og passa að þeir fari ekki af vettvangi fyrr en leyfi hefur verið gefið um það. Þetta er nauðsynlegt til að vita hverjir eru komnir út og hvort einhverja vantar. Einnig til þess að vitað sé hvar hver er þegar foreldrar fara að leita frétta um börnin sín.
Oftast er hver skólastofa eða samliggjandi skólastofur sérstök brunahólf sem eiga að standast bruna í 60 mínútur. Skólastofur eru með tvær flóttaleiðir þar sem önnur er út á gang en hin oftast opnanlegur gluggi. Ef leiðin út á ganginn er ófær t.d. vegna reyks á að tryggja að dyrnar séu lokaðar og síðan nota hina flóttaleiðina. Ef björgunaropið er neðarlega er farið strax út en annars er haldið kyrru fyrir í stofunni þangað til ykkur verður bjargað út. Best er að láta vita af sér með því að veifa einhverju áberandi út um gluggann.