Á skemmti og veitingastöðum

Skemmti-og veitingastaðir

Þú átt að bregðast strax við
Ef brunaviðvörunarkerfið fer í gang eða þú sérð að eitthvað hættulegt er að gerast skaltu bregðast strax við án þess að hika og fara að næsta útgangi. Hafðu í huga að sú leið þar sem þú komst inn  þarf ekki að vera fljótasta leiðin út, það gætu verið aðrir útgangar nær þér.

Út-ljós og skilti
vísa þér á leiðir út úr húsinu og mundu að þær eru alltaf fleiri en ein ef sú leið sem þú velur fyrst er ófær.  Ef þú átt erfitt með að átta þig hikaðu ekki við að spyrja starfsfólk eða fylgstu með hvert aðrir í kringum þig eru að fara.

Farðu út og vertu úti.
Þegar þú kemur út máttu alls ekki fara inn í húsið aftur fyrr en hættuástandi hefur verið aflétt.

Láttu vita.
Ef þú telur þig vita um einhvern sem er ekki kominn út láttu lögreglu og björgunarfólk vita.

Það sem er sérstakt við hættuástand á skemmtistöðum og veitingastöðum er þetta:

  • Oftast er reynt að fá leyfi fyrir eins mörgum gestum og húsnæði mögulega rúmar og því er oft þröng á þingi.
  • Mikill hávaði að staðaldri á staðnum sem gerir viðvörun með hljóði erfiðari en ella.
  • Gestir eru stundum ölvaðir og í annarlegu ástandi sem sljóvgar viðbrögð og leiðir til órökréttrar hegðunar í hættuástandi.
  • Notkun logandi kerta.
  • Vegna slæmrar umgengni er staðsetning á handboðum og slökkvibúnaði oft öðru vísi en best verður á kosið.
  • Vegna eðlis starfseminnar geta oft verið uppákomur á staðnum sem eru mis vel ígrundaðar. Stundum eru jafnvel eldfimar skreytingar. Hljómsveitir nota stundum búnað sem rýrir öryggi eins og t.d. reykvélar o.fl.
    Af þessum sökum er mikilvægt að rýming byrji strax og viðvörun um hættuástand hefur verið gefin. 
  • Gleymdu öllu sem þú hefur heyrt um falsboð og farðu strax út úr húsinu. Ef þú ert  vakandi fyrir eigin öryggi eru nokkur atriði sem þú getur haft í huga. Fyrst er það fjöldi gesta.  Ef fjöldinn er meiri en leyfilegt er að hafa á staðnum getur það haft slæm áhrif á möguleika þína til að komast út. Síðan eru það flóttaleiðir sem eiga að vera tvær eða fleiri og óháðar hvor annarri. 
  • Kíktu eftir flóttaleiðum og hvort þær séu ekki greiðfærar. Hafðu í huga að stundum eru flóttaleiðir ógreiðfærar. Vertu vakandi fyrir því ef einhverjar uppákomur eru á staðnum sem geta haft í för með sér óeðlilega mikla eld- og slysahættu.