Á sjúkrahúsi

Sjúkrahúsið

Þú átt að bregðast strax við
Ef brunaviðvörunarkerfið fer í gang og þú er gestur eða rólfær sjúklingur þá áttu að bragðast strax við án þess að hika og fara að næsta útgangi.

Hreyfihamlaðir og rúmfastir sjúklingar bíða eftir að starfsfólk komi og hjálpi því á öruggann stað í byggingunni.  Hafðu í huga að sú leið þar sem þú komst inn í sjúkrahúsið þarf ekki að vera fljótasta leiðin út, það gætu verið aðrir útgangar nær þér. 

Út-ljós og skilti vísa þér á leiðir út úr húsinu og mundu að þær eru alltaf fleiri en ein ef sú leið sem þú velur fyrst er ófær. Starfsfólk sjúkrahússins hefur fengið þjálfun í réttum viðbrögðum í eldi svo þú skalt fara eftir fyrirmælum þeirra og ef þú átt erfitt með að átta þig hikaðu ekki við að spyrja það til vegar.

Farðu út og vertu úti.
Þegar þú kemur út máttu alls ekki fara inn í húsið aftur fyrr en hættuástandi hefur verið aflétt.

Láttu vita. Mikilvægt er að þú látir öryggisverði og björgunarfólk vita að þú sért kominn út.

Það sem er sérstakt við hættuástand í sjúkrahúsum er:

  • Um er að ræða yfirleitt stórar og flóknar byggingar þar sem mikil fjöldi dvelur bæði sjúklingar og starfsfólk ásamt gestum.
  • Stærð og fyrirkomulag í byggingunni veldur því að ólíklegt er að þú sjáir ummerki frá eldi eða því sem setti brunaviðvörunarkerfið í gang .
  • Vegna eðli starfsseminnar eru mjög öflugar brunavarnir í sjúkrahúsum, starfsfólk fær þjálfun til að bregðast rétt við í eldi, vaktir eru allan sólarhringinn og rýmingaráætlanir liggja fyrir.
  • Þar sem margir sjúklingar eru ósjálfbjarga og þola illa flutning er ekki reiknað með að allir fari beint út heldur í áföngum sem er svokölluð lárétt rýming. 
  • Miðað er við að fyrst séu ósjálfbjarga sjúklingar færðir milli fyrirfram ákveðinna brunahólfa/ brunasamstæðna á sömu hæð frá hólfinu þar sem hugsanlegur eldur er. Þar gefst meiri tími til að undirbúa sjúklingana undir frekari flutning. Starfsfólk og björgunarfólk sér síðan um að koma sjúklingunum út ef aðstæður kalla á það.

Af þessum sökum er mikilvægt að rýming byrji strax og viðvörun um hættuástand hefur verið gefin. Ef þú er gestur eða rólfær sjúklingur gleymdu þá öllu sem þú hefur heyrt um falsboð og farðu strax út úr húsinu. Hlýddu samt öllum fyrirmælum starfsfólks og leitaðu upplýsinga hjá því ef þú er óöruggur með hvert þú átt að fara. Á leiðinni út skalt þú hlusta eftir skilaboðum frá hátalarakerfi hússins. Hreyfihamlaðir og rúmfastir sjúklingar eru háðir hjálp frá starfsfólki til að fara á örugga staði. Starfsfólkið er þjálfað í að fara eftir svo kallaðri rýmingaráætlun þegar hættuástand skapast en sjálfsagt er að reyna að ná athygli þess sem fyrst. Rýmingaráætlunin gerir oft ráð fyrir að fyrsta stig rýmingar á hreyfihömluðum og rúmföstum sjúklingum sé að færa sjúklingana frá því brunahólfi þar sem hættuástand er og yfir í annað brunahólf á sömu hæð. Með því skapast tími til að meta ástandið og halda þaðan áfram með rýmingu á sjúklingum ef þörf er á.