Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins var stofnuð í janúar 2004. Fyrir sameiningu störfuðu þrjár almannavarnanefndir á svæðinu, almannavarnanefnd KMRS (Kjós, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes), almannavarnanefnd Kópavogs og sameiginleg almannavarnanefnd Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Álftaness. Nýtt starfsskipulag tók gildi en í því er fjallað um almannavarnanefnd, framkvæmdarráð og aðgerðastjórn.
Almannavarnanefnd (AHS)
Hlutverk almannavarnanefndarinnar er tvískipt, annars vegar utan aðgerða og hins vegar í aðgerðum. Hlutverk almannavarnanefndar utan aðgerða er:
Hlutverk almannavarnanefndar í aðgerðum er:
Hvert sveitarfélag skipar einn aðalmann í nefndina, auk framkvæmdastjóra sveitarfélagsins, og tvo til vara. Slökkviliðsstjóri og fulltrúi frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sitja einnig í nefndinni. Framkvæmdastjóri Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins er Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri.
Aðalmenn frá sveitarfélögunum eru nú:
Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson frá Reykjavík
Haraldur Sverrisson og Herdís Sigurjónsdóttir frá Mosfellsbæ
Ásgerður Halldórsdóttir og Guðmundur Magnússon frá Seltjarnarnesbæ
Guðmundur Rúnar Árnason og Hallgrímur Hallgrímsson frá Hafnarfirði
Pálmi Þór Másson og Kristinn Guðlaugsson frá Álftanesi
Guðrún Pálsdóttir og Guðríður Arnardóttir frá Kópavogi
Gunnar Einarsson og Erling Ásgeirsson frá Garðabæ
Guðný G. Ívarsdóttir og Adam Benedikt Burgess Finnsson frá Kjósarhreppi